Einkareknar ráðningarþjónustur HH Ráðgjöf

Einkareknar ráðningarþjónustur HH Ráðgjöf

Um HH Ráðgjöf

HH Ráðgjöf hóf starfsemi sína árið 2005. Fyrirtækið er í einkaeigu.

HH Ráðgjöf veitir viðskiptavinum sínum heildarlausnir bæði á sviði ráðningar- og bókhaldsþjónustu og eru fagmennska, persónuleg þjónusta og vönduð vinnubrögð einkunnarorð okkar. Mikil áhersla er lögð á að starfsmenn fyrirtækisins fái alla þá þjálfun sem hægt er að veita og einungis eru ráðnir til starfa einstaklingar með mikla þekkingu og reynslu á því sviði sem þeir starfa við hjá HH Ráðgjöf. Ennfremur hefur það verið okkur mikið kappsmál að nýta tæknina til fullnustu og var af þeim sökum m.a. sérskrifaður hugbúnaður fyrir ráðningarþjónustuna sem hefur verulega þýðingu varðandi gæði þjónustunnar og gerir okkur kleift að finna á mun markvissari hátt en ella rétta einstaklinginn fyrir rétta starfið. Einnig hefur reynst ákaflega vel og mælst mjög vel fyrir hjá viðskiptavinum okkar sú stefna að vinna hratt og örugglega og hraða ráðningarferlinu eins og unnt er.

Viðskiptavinir HH Ráðgjafar eru af öllum stærðum og gerðum, allt frá einyrkjum til stærstu fyrirtækja landsins.

Fyrirtækið hefur verið í örum vexti allt frá stofnun þess og hafa viðtökur verið afar góðar, jafnt hjá fyrirtækjum sem og einstaklingum. Starfsmenn HH Ráðgjafar eru nú orðnir 6 talsins og er þar valinn maður í hverju rúmi. Þannig hefur safnast fyrir hjá fyrirtækinu gríðarleg þekking og reynsla á sviði starfsmannamála, ráðninga og bókhaldsmálum.;

Darbo paieška: 

 

Naudojantis šia paieška galima rasti visus Lietuvos ir užsienio lietuviams skirtus darbo pasiūlymus vienoje vietoje (pvz.: įrašykite į paieškos langelį darbas Lietuvojedarbas Anglijoje arba darbas Norvegijoje ir spauskite mygtuką ieškoti...). Sistema tinkintos Google paieškos pagalba suras Jums tinkamą koncentruotą informaciją apie Jūsų ieškomus darbus.  

Svetainėje naudojami slapukai, kurie padeda užtikrinti jums teikiamų paslaugų kokybę. Tęsdami naršymą, jūs sutinkate su slapukų politika.